Opin bók er íslensk dagbókarlína sem byggir á því að hver og einn geti sett dagbókina sína saman eftir því hvað hentar, breytt og bætt að vild hvenær sem er á einfaldan hátt.
Í boði er fjölbreytt úrval: heilar bækur, búnt fyrir þau sem eiga kápur eða klemmur og loks einstök blöð nánast eins og hugurinn girnist. Hér fyrir neðan er farið yfir samsetningar og flokka sem línan býður uppá.
„Opin bók og brekka í fang blíðlega tefja ferðalang“
– Þorsteinn Valdimarsson frá Teigi
Bók
Mín, Heilsan, Skipulagið, Fjármálin og Uppskriftirnar mínar eru heilar bækur sem koma samsettar og tilbúnar til notkunar með fallegri kápu, klemmum og milliblöðum og að sjálfsögðu er alltaf hægt að bæta auka blöðum við.
Í sumar bækurnar er hægt að velja á milli mismunandi uppsetninga á innihaldinu. S.s. í Heilsan er hægt að velja á milli heilsudagbókar og svefndagbókar og í Mín er hægt að velja um að hafa dag á síðu, lóðrétt vikuyfirlit eða lárétt vikuyfirlit.
Búnt
Búnt er tilbúið innihald í dagbók og hentar sérstaklega vel þeim sem eiga kápu eða klemmur fyrir 6 gata A5 blöð. Eins og í bókinni er hægt að velja á milli mismunandi þema í búntunum;
– Dagbókargrunnur
– Heilsugrunnur
– Skipulagsgrunnur
– Fjármálagrunnur
– Uppskriftagrunnur
Fleiri grunnar bætast við fljótlega. Búnt eru tilvalin til að setja í dagbókarkápu. Við mælum að sjálfsögðu með Ögn Icelandic kápunum utan um búntin okkar.
Blöð
Hagnýt dagbókar- og skráningarblöð af ýmsu tagi eru í boði í sér pakkningum. Bæði er hægt að fá þau sem eru í bókunum/búntunum en einnig önnur svo sem innkaupalista, rúðustrikuð blöð og margt fleira.
Efni og stærð
Öll blöðin eru í stærð A5 nema “listar” sem eru c.a. 2/3 af breidd A5. Við notum 100gr. svansvottaðan pappír.
Fjöldi
Mismunandi er hversu mörg blöð eru í pakka eftir því um hvaða blöð ræðir en flest blöð er hægt að fá í 10 og 20 blaða pökkum eða t.d. 5 vikna pökkum.
Tegundir
Þau blöð sem eru til núna eru:
– Listar; verkefnislistar, minnislistar, innkaupalistar, matseðlar
– Einföld blöð; línustrikuð, rúðustrikuð, punktuð og auð
– Dagbókarblöð; ársyfirlit, mánaðaryfirlit, vikuopnur lóðréttar og láréttar (með vikuyfirliti og samantekt), dagur á síðu
– Heilsublöð; heilsudagbók, svefndagbók, verkjablöð, heilsufarsskráning, viðtals-/meðferðarblöð, hreyfingarblöð
– Skipulagsblöð; markmiðablöð, verkefnablöð, lykilorðabanki
– Fjármálablöð; Fjármál mánaðar, markmiðablöð, sparnaðaráskoranir og lánayfirlit.
– Önnur blöð; uppskriftablöð, venjuhringir og fleiri