Verð og greiðslur
Verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Við áskiljum okkur rétt til að breyta verðum án fyrirvara. Öll verð í netversluninni eru tilgreind með virðisaukaskatti (VSK) þegar það á við. Greiðslur eru afgreiddar á öruggan máta í gegnum þjónustuaðila (MyPos) við kaup.
Afhending
Við leggjum okkur fram við að afgreiða hverja pöntun fljótt og vel. Almennur afhendingartími innanlands er 2–4 virkir dagar. Einstaka sinnum lengist afhendingartími s.s. vegna sumarleyfis. Þá reynum við eftir fremsta megni að láta vita af því á miðlum okkar sem og í vefverslun. Sendingarkostnaður bætist við pöntunina áður en greiðsla fer fram.
Endurgreiðslu- og skilastefna
Við leggjum mikið upp úr því að bjóða góða vöru og þjónustu. Ef vara keypt hjá okkur uppfyllir ekki væntingar þínar, býður Ögn Icelandic upp á 14 daga skilafrest frá þeim degi sem þú móttekur vöruna. Til að eiga rétt á skilum verður varan að vera ónotuð, í sama ástandi og hún kom og í upprunalegum umbúðum.
Vöruskipti
Við skiptum einungis út vörum að uppfylltum framangreindum skilyrðum um vöruskil eða ef þær eru gallaðar eða skemmdar við komu. Ef þú óskar eftir skiptum vinsamlegast hafðu samband við okkur.
Gölluð vara
Ef þú móttekur vöru sem er skemmd eða gölluð, vinsamlegast hafðu samband við okkur eins fljótt og auðið er með pöntunarnúmer og mynd af gallanum. Við munum gera okkar allra besta til að bjóða þér nýja vöru eða fulla endurgreiðslu.
Endurgreiðslur
Þegar við höfum móttekið og yfirfarið skilavöru sendum við þér tilkynningu um hvort endurgreiðslan sé samþykkt. Ef svo er verður endurgreiðslan afgreidd sjálfkrafa inn á þann greiðslumiðil sem notaður var við kaupin ef greitt var með korti. Ef greitt var með millifærslu verður haft samband.
Útsöluvörur
Afsláttarkóðar virka ekki á útsöluvörur eða á meðan útsala stendur yfir.
Einungis vörur á almennu verði eru endurgreiddar. Því miður er ekki hægt að fá útsöluvörur endurgreiddar nema þær séu gallaðar. Hægt er að skipta útsöluvörum á því verði sem þær voru keyptar nema annað hafi verið tekið fram og að uppfylltum öðrum skilyrðum um skil og skipti á vörum.
Gjafir
Ef varan var merkt sem gjöf við kaup og send beint til þín, færðu inneignarnótu sem samsvarar verðmæti vörunnar. Þegar við höfum móttekið skilavöruna verður inneignarnótan send til þín.
Sendingarkostnaður við skil
Vinsamlegast hafið samband til að fá leiðbeiningar um hvert skal senda vöruna. Kaupandi greiðir sjálfur sendingarkostnað við að skila vöru. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur.
Upplýsingar og aðstoð
Verslun Ögn Icelandic er rekin af:
Praktína ehf.
kt. 461125-0420
Víðilundur 14, 600 Akureyri
ogn@ognicelandic.com
Þurfir þú á aðstoð að halda vegna kaupa hjá okkur vinsamlegast ekki hika við að hafa samband. Hægt er að senda tölvupóst á ogn@ognicelandic.com eða smella hér og fylla út formið
