Paper Starlights

Þegar íslenski veturinn minnir á sig og myrkrið skellur á, er fátt mikilvægara fyrir vellíðan okkar en að skapa hlýlegt og kósý andrúmsloft á heimilinu. Pappírsstjörnurnar frá breska fjölskyldufyrirtækinu Paper Starlights eru dásamleg leið til að draga úr amstri dagsins, mýkja birtuna og færa fegurð inn í hversdagsleikann.

Við höfum lagt alúð í að velja einstakt og litríkt úrval stjarna sem lífga upp á rýmið og fást ekki hvar sem er á Íslandi. Þær henta jafnt sem róandi stemningarlýsing dags daglega eða sem glæsilegar skreytingar fyrir hvers kyns fagnaði, veislur og hátíðir. Hver einasta stjarna á sér sína sögu. Þær eru handunnnar og silkiprentaðar af færu handverksfólki úr pappír sem er unninn á algerlega sjálfbæran máta. Stjörnurnar eru Fair Trade vottaðar í gegnum BAFTS (Fair Trade Network UK), svo þú getur fært birtu og litagleði inn á heimilið með góðri samvisku. Þar sem þær koma í flötum pakningum geymast þær einstaklega vel á milli þess sem þær eru notaðar og endast árum saman ef vel er farið með þær.

Snjallar og öruggar ljósalausnir

Gott að hafa í huga: Ljósabúnaður fylgir ekki með stjörnunum sjálfum. Best er að nota þær með LED perum, litlum batteríisljósaseríum eða litlum perum á streng eða standi (ekki sterkari en 40 wött).

Í vefversluninni finnur þú sérhannað USB LED ljós (1,5W) með 4 metra langri snúru. Þessi sparneytna lausn notar 90% minni orku en hefðbundin 40W pera og er þróuð sérstaklega til þess að kalla fram bestu mögulegu birtuna, smáatriðin og dýptina í mynstri stjörnunnar þinnar. Þar sem ljósið gengur fyrir USB geturðu tengt það við hleðslukubb, tölvu eða jafnvel hleðslubanka ef þú vilt hengja stjörnuna þína upp þar sem engin innstunga er nálægt.

Öryggið er líka mikilvægur hluti af vellíðan: Sýnum ávallt fyllstu varkárni og skiljum pappírsstjörnur aldrei eftirlitslausar við logandi ljós.

Showing all 15 resultsSorted by average rating