Glansverkstæðið er vinnustofa þar sem litir, glans og endurnýting mætast. Þáttakendur læra að að umbreyta skóm úr leðri eða gervileðri í litríkar og glansandi gersemar með málmfólíum (imitation gold foils) og skapandi uppskrúfun. Ég legg áherslu á létt andrúmsloft þar sem vandað handverk, gott spjall og þægileg samvera er í fyrirrúmi.
Allt efni á staðnum er innifalið auk þess sem að vinnustofu lokinni færðu viðgerðarpakka með þér heim ef þarf að dytta og til að setja verndandi lag yfir málmhúðina.
Fá pláss – lítill hópur: Alla jafna eru fá pláss í boði á hverri vinnustofu. Að lágmarki 6 og að hámarki 12 þátttakendur, til að tryggja góða leiðsögn.
Hér fyrir neðan eru algengar spurningar, hvað fyrri þáttakendur hafa um námskeiðin að segja, frekari upplýsingar um Glansverkstæðið og hlekkir á næstu námskeið
















