Glansverkstæði – Akureyri

15.900 kr.

Gefðu lúnum eða gleymdum skóm annað tækifæri. Komdu á þriggja tíma vinnustofu þar sem þú lærir handbrögðin við skapandi uppskrúfun gold leaf foiling. Ég mæti með tækin, efnin og þekkinguna – þú mætir með skó-par úr leðri eða gervileðri og ferð heim með glansandi gersemar.

Availability: In stock

- +

Við eigum öll þetta eina par af skóm – þá sem passa fullkomlega en eru farnir að láta á sjá og missa sjarmann. Í stað þess að láta hlutina safna ryki, bjóðum við þér á Glansverkstæðið, vinnustofu þar sem litir, glans og endurnýting mætast.

Á þessari 3-4 klukkustunda vinnustofu lærirðu að að umbreyta skóm úr leðri eða gervileðri í litríkar og glansandi gersemar með málmfólíum (imitation gold foils).

Við hverju máttu búast?

  • Litríkt handverk: Þú lærir raunveruleg handbrögð við skapandi uppskrúfun.

  • Létt andrúmsloft: Við leggjum áherslu á vandað handverk, gott spjall og þægilega samveru.

  • Allt innifalið: Allt efni á staðnum er innifalið. Að kveldi loknu færðu viðgerðarpakka með þér heim ef þarf að dytta að eða setja verndandi áferð yfir.

  • Veitingar: Boðið er upp á vatn og kaffi, en þátttakendum er velkomið að koma með aðrar veigar með sér.

Nánari upplýsingar:

  • Staðsetning: Viðjulundur 2, Akureyri (salur Rauða krossins).

  • Tími: Kl. 19:00 – 22:00 (getur teygst aðeins úr ef fjörið er mikið).

  • Hvað þarf að taka með? Eitt par af skóm (að hluta til úr leðri/gervileðri). Ég mæli með að kíkja við í verslun Rauðakrossins, Hertex eða loppuverlanirnar Aftur nýtt og Lottan ef þig vantar skó. Ef þú hvorki átt né finnur réttu skóna er líka hægt að koma með einfalt veski.

  • Fá pláss – lítill hópur: Að lágmarki 6 og að hámarki 12 þátttakendur til að tryggja góða leiðsögn.

Mættu með skó sem hættir eru að njóta sín og farðu heim eftir gleðilega kvöldstund með glansandi gersemar

Reviews

There are no reviews yet.

Be the first to review “Glansverkstæði – Akureyri”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Shopping Cart
glansverkstæði akureyriGlansverkstæði – Akureyri
15.900 kr.

Availability: In stock

- +