Sending
Þar sem Ögn Icelandic er á Akureyri eru nánast allar sendingar sendar með Póstinum og sendingarkostnaður reiknast sjálfkrafa í greiðsluferli. Afgreiðsluferli eftir staðfestingu pöntunar er oftast um sólarhringur, eftir það getur tekið einhverja daga fyrir Póstinn að koma sendingunni til skila en ég miða við að í lang flestum tilfellum ættu sendingar að vera að berast innanlands á 2-4 dögum. Til að tryggja yfirsýn fylgir sendingarnúmer öllum sendingum með Póstinum. Þú færð sendan tölvupóst með upplýsingum um leið og pakkinn þinn er lagður af stað. Ef þú ert með sendingarnúmerið þá geturðu séð stöðu sendingarinnar hér.
Vinsamlegast athugið að Ögn Icelandic ber ekki ábyrgð á skemmdum sem verða á sendingum í höndum flutningsaðila eða týndum sendingum sem afhentar hafa verið flutningsaðila. Ef tjón verður eða sending týnist þá reyni ég að aðstoða eftir fremsta megni en bendi á að byrja á að hafa samband við Póstinn hafi sending verið póstlögð.
Býrð þú á Akureyri? Þér er velkomið að sleppa við bið eftir póstinum og sækja pöntunina þína til mín. Veldu ‘Sækja’ í greiðsluferlinu og ég hef samband til að finna tíma sem hentar.
Dreymir þig um Opna bók en býrð erlendis? Við bjóðum upp á alþjóðlegar sendingar. Vinsamlegast athugið að afhendingartími er breytilegur eftir löndum og kaupendur bera ábyrgð á tollum og aðflutningsgjöldum í sínu landi.